100 orða örsaga
Ég er kominn til London í jólafrí en langaði samt að pósta. Ég er akkúrat núna staddur á London Science Museum fyrir framan skjá að horfa á myndband um holræsakerfi borgarinnar og var að koma í gegnum sýningu um geðsjúkdóma og meðhöndlun þeirra. En niðri á fyrstu hæð rakst ég á þessa og langaði að setjast niður og skrifa eitthvað smáræði.
Gleðileg jól
Think-a-tron
Hugsaðu þér tannhjól sem snúast hundrað sinnum um öxul sinn á mínútu en muna ekki eftir því að það vantar klósettpappír þegar þau eru í búðinni. Fjögur hundruð metrar af kopar strengjum þvera plastið fram og til baka en ná saman fyrr en í blá lokin. Innan í þeim þjóta rafeindir á fimmtíu riðum, sem berja í stýrið og bölva pólitíkinni í síðdegis útvarpinu.
En svo kemur að því að kvöldar. Þá kólnar elementið, blátt plastið hættir að braka og gormarnir slakna. Man hún þá að hún er bara mennsk? Að stundum þarf að minna sig á að slaka.